
Elvar & Rósa
Rekstur Bíla

Þjónusta
Viðgerðir
Viðgerðir geta verið margs konar en gott dæmi eru bremsuviðgerðir.
Viðhald
Bílar þarfnast ýmiss konar viðhalds, t.d. smurningar. Þættir eins og skoðun og viðgerðir tengdum þeim geta einnig fallið undi viðhald.
Hjólbarðar
Passa þarf að bílar séu á góðum dekkjum sem hæfa aðstæðum á hverjum tíma. Þessu fylgja hjólbarðaskipti (umfelgun) og
jafnvægisskipting.

Tryggingar
Tryggingar. Í útreikningunum er stuðst við meðaliðgjald fyrir ábyrgðartryggingu, slysatryggingu ökumanns og eiganda, bílrúðutryggingu og kaskótryggingu. Til viðbótar er áætlaður kostnaður neytenda vegna eigin áhættu í tryggingatjónum.
Tryggingagjöld fara eftir verði bíls og má reikna með að tryggingar á bíl í lægsta verðflokki (2.800.000 kr) séu 195.000 kr/ár. Inn í því gjaldi er ábyrgðartrygging, slysatrygging ökumanns og eiganda, bílrúðutrygging og kaskótrygging. Einnig er áætlaður kostnaður neytenda vegna eigin áhættu í tryggingatjónum tekin með. Tryggingagjöld á bíl í næsta verðflokk fyrir ofan (3.700.000 kr.) eru 212.000 kr/ár.



Skattar og skoðun
Skattar og skoðun. Bifreiðagjaldið er innheimt tvisvar á ári fyrir 6 mánuði í senn. Nýjar bifreiðar, sem ekki eru notaðar í atvinnurekstri, skal skoða í fyrsta sinn á fjórða ári eftir fyrstu skráningu og síðan annað hvort ár í tvö skipti og árlega eftir það. Útreikningar FÍB styðjast við meðaltalskostnað bifreiða sem keyptar eru nýjar og ekki seldar fyrr en eftir 3 eða 5 ár og þess vegna er vægi skoðunargjaldsins í útreikningunum minna en gildir um atvinnu- og eða eldri bifreiðar. Úrvinnslugjald er skattur sem lagður er á bíla sem eru yngri en 15 ára (700 kr. árið 2015).
Lægstu skoðunargjöld er að finna hjá Tékklandi, 8.995 kr fyrir bíl allt að 3.500 kg. Bifreið þarf að færa til skoðunar fjórum árum eftir að hún er nýskráð, annað hvert ár tvisvar eftir það og svo árlega.
Bifreiðagjöld eru innheimt tvisvar á ári fyrir 6 mánuði í senn og fara eftir þyngd og kolefnislosun bifreiðar.
Reikna má með að skoðunar- og bifreiðagjöld séu 15.000-20.000 kr á ári fyrir bíl allt að 3.500 kg.