top of page
Þrif
Að fara með bílinn í hreinsun á bílaþvottastöð og þrífa bílinn að utan kostar: Fólksbíll 2990 og getur farið uppí 4090 ef keypt er líka þvottur á mottum og felgusýra. Jepplingar eru 3490 og geta farið í 4590. Jeppar, pallbílar og sendibílar eru á 3890 og uppí 4990. Þetta er samkvæmt upplýsingum hjá Bílaþvottastöðinni Löður. Alþrif kosta hinsvegar fyrir lítinn fólksbíl 13500, fyrir stóran fólksbíl 14500, fyrir jeppling 16500 og fyrir jeppa 19500. Þá er verið að tala um að þrífa bílinn bæði að utan og innan. Síðan eru margir sem gera þetta einfaldlega heima hjá sér og kaupa sér ýmisskonar efni í verkið, bílaþvottadót fæst á öllum bensínstöðvum.



bottom of page