
Bílastæði
Bílageymslur, stöðumælar og leigustæði. Undir þrifin falla heimsóknir á bílaþvottastöðvar, bón, hreinsiefni o.fl. Árgjald FÍB 2015 er 7.260 krónur.
Dæmi um bílastæði. Þú ferð í tveggja vikna ferð með fjölskyldunni til Spánar, þið ákveðið að geyma bílinn ykkar á Keflavíkurflugvelli. Heildarkostnaðurinn fyrir þessar tvær vikur eru 10.850kr. Verð á hvern dag fyrstu 7 dagana eru 950kr.
Bílastæði í miðbænum. Gjaldsvæðum er skipt niður í 4 hluta ; P1 sem er aðallega á laugarveginum sjálfum, Lækjargötu, Pósthússtræti, Kirkjustræti og Vonarstræti. Þar kosar 1 klst í stæði 250 kr. P2 Er svæðið í kringum laugaveg, þar kostar 1 klst 125kr. P3 sem er aðeins utar kostar 1 klst 90kr og P4 eru svo stæðin við spítalana og þar er 1 klst á 125kr. Bílastæðahús. Það eru nokkur bílastæðahús í borginni, þá aðallega í miðbænum. Gjaldið í Stjörnuport og Vitatorgi er 80kr fyrir fyrsta klukkutímann og svo 50kr klst eftir það. Hins vegar í Kolaporti, Vesturgötu, Ráðhúsinu og Traðarkoti er gjaldið 150kr fyrsti klukkutíminn og 100 klst eftir það. Bílastæðahús Hörpu er svo með 225 kr 1klst, 800 kr 4klst og 1500kr 8klst.
Stöðumælasekt er 2500kr ef hún er ekki greidd eftir 14 daga hækkar hún um 1400 kr og fer úr 2500kr í 3750kr. Ef svo sektin er ekki greidd eftir 28 daga hækkar sektin upp í 5000kr.Stöðubrotsgjald er hinsvegar 10.000kr. Stöðubrotsgjald er lagt á bifreið þegar stöðvað eða lagt er undir bannmerki, stöðvað á gangstétt, of nærri gangbraut eða við aðrar nánar tilteknar aðstæður

