top of page

Við fundum Yaris bifreið, árgerð 2011, ekna 90.000 km. (18.000 km/ári), verð 1.590.000- kr., og teljum hana nokkuð líklegan skólabíl. Hér á eftir má sjá útlistun á árlegum rekstrarkostnaði. Tekið er mið af þeim upplýsingum sem fram koma annars staðar á síðunni.
Árlegt vaxtatap: 95.400- kr.
Verðmætarýrnun: 254.400- kr. (mv 16%)
Bifreiðagjöld: 5.900- kr.
Tryggingar (innifalið er kaskó): 150.000- kv.
Hjólbarðar: 50.000- kr.
Viðhald og viðgerðir: 110.000- kr.
Bensín: 250.000- kr.
Heild: 915.700- kr. á ári, þar af 349.800- kr. í vaxtatap og verðmætarýrnun.
Það kostar því 915.700- kr., eða 76.300- kr. á mánuði (47.160- kr. ef vaxtatap og verðmætarýrnun er ekki tekið með), á ári að reka þennan bíl. Það er yfir meðallaunum meðal menntaskólanema.

bottom of page